Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Þetta fjandans BARNANET!!!

04. október 2008 klukkan 17:25

Smá útskýringarfærsla hérna!!

Við erum ekki hætt með síðuna hans Gunnars Helga, málið er að við vorum með svona prufumánuð. Þegar það var að renna út sendi ég barnanet e-mail og spurði bara hvort ég gæti ekki fengið að millifæra úr heimabanka. TAKIÐ EFTIR...ÉG FÉKK SVAR UM LEIÐ! Jújú ekkert mál....ég lagði inn samstundis og þetta var nánartiltekið 29. september!
Síðan þá hef ég sent ótal e-mail og aldrey fékk ég svar fyrr en Í GÆR!! og þá var sagt að greiðslan væri mótekin og síðan yrði opnuð VIÐ FYRSTA TÆKIFÆRI....já það vantar ekki að manni er svarað strax þegar maður vill borga en þegar því er lokið þá má maður bara bíða! Ég sendi svo e-mail aftur áðan og lýsti yfir óánægju minni með þetta og krafðist þess að síðan yrði opnuð STRAX! Spurning hvort ég fái svar eftir tvær vikur! Ég er jú búin að borga og þeir eru sáttir. Skítapakk segi ég nú bara!
Allaveganna annars braggast drengurinn rosalega vel, lætur vel heyra í sér ef hann er látin bíða aðeins með sínar máltíðir! Þá er ekkert hægt að gera nema rífa spenan út og smella honum á. Annars erum við ansi spennt fyrir morgundeginum...það er dáldið sem við meigum ekki segja frá strax samt eða ekki fyrr en á morgun réttarasagt!

Jæja allir hlakkiði til með okkur, hehe! Heyrumst síðar og vonandi á skíta barnaneti!

Birgitta Rán
2 athugasemdir

Gunnar Helgi er komin með síðu..

08. september 2008 klukkan 18:08
Já ég lét undan! Langaði ekkert að gera svona síðu fyrir hann. Mig langar heldur ekkert að hver sem er geti skoðað myndirnar hérna inná þannig að ég ákvað bara að gera síðu fyrir hann og ELSKU FÓLK (sem fá lykilorðið) VILJIÐI PLÍS HALDA ÞESSU FYRIR YKKUR! Takk fyrirKoss

Allaveganna slóðin er http://www.barnanet.is/6144 og svo er lykilorðið nei ekki héldum þið að ég myndi skrifa það hér!! Ohh ég er svo fyndinGlottandiSendið mér bara e-mail..

Bið að heilsa...AdiosBrosandi
Birgitta Rán
4 athugasemdir

Drengurinn er fæddur!

15. ágúst 2008 klukkan 15:13

Eins og þið vitið og ég hef þokkalega orðið vör viðHlæjandi

Ég vil byrja á því að þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar og gjafirnar sem barnið er búið að fá! Við foreldrarnir erum vægast sagt orðlaus yfir þessu öllu saman. Rosalega gaman líka að sjá hverjir fylgjast með.

Jæja aftur að litla blóminu okkar, hann er alveg guðdómlegur! Við erum alveg í skýjunum yfir því að hann sé loksins mættur og lét ekkert bíða eftir sér. Fyrir þá sem ekki vita fæddist hann 3800gr og 54 cm. Fæðingin gekk mjög vel og tók ekki langan tíma, eða svo seigja þeir sem hafa einhvað vit á þessu! Mér fannst þetta náttúrulega taka heila eilífð enda þokkalega þolinmóð kona á ferðSaklausVerkirnir voru orðnir reglulegir um fjögur á sunnudeginum og drengurinn var fæddur 01:55 um nóttina. Við sendum reyndar í öllum sms-unum að hann hafi fæðst 02:05 en það var víst vitleysa...lásum það á skýrslunni daginn eftirGlottandiEnda var svosem hugurinn ALLT annars staðar hjá okkur þegar við fengum dúlluna í fangið! Ég átti meira segja endalaust erfitt með að muna hvað hann var stór og ég hef ekki tölu á því hvað ég spurði Magga oft að þvi, en það var oft.

Við ákváðum að skella okkur bara heim við fyrsta hanagal..eða næstum því allaveganna! Vorum komin heim um tvö leitið á mánudeginum, mig langaði bara heim í mitt rúm og í mína sturu og pissa í mitt klósett! Var einhvað hálf óörugg á sjúkrahúsinu, ekki það að það hafi verið slæmt þarna...Ó nei! Þetta var alveg meiriháttar allt saman. Fengum þetta fína herbergi, eða bara svítu takk fyrir! Mér fannst rosalega gott að Maggi gæti verið alveg hjá okkur. Ég er allaveganna búin að ákveða það að ef ég eignast fleiri börn (sem ég er EKKI að hugsa um núna)þá ætla ég sko að eiga í Keflavík. Þó svo ég verði búsett á Grænlandi!! Ljósmæðurnar þarna eru alveg yndislegar, sú sem tók á móti litla snúð heitir Valgerður Ólafsdóttir alveg frábær kona. Hún er einnig sú sem sér um að koma heim til okkar að kíkja og ath hvort allt sé ekki í góðu með alla. Hún er allaveganna alveg frábær og við erum mjög þakklát fyrir þessa góðu ljósmóðir sem við fengumKoss

Jæja nú er ég allaveganna búin að blogga. Ætlaði ekki að láta bíða svona eftir okkur sko...en í sárabætur ætla ég að setja inn myndir líka!

Við litli Sætasti byðjum hjartanlega að heilsa og þökkum kærlega enn og aftur fyrir okkur, já og pabbinn líkaKoss

Birgitta Rán
13 athugasemdir

Jæja nú styttist í 11. ágúst:)

09. ágúst 2008 klukkan 00:25

Ég var búin að skrifa heljarinnar hellings færslu fyrr í dag og svo datt hún út!!! Djöfull hvað ég var pirruð..þoli ekki þegar þetta gerist!

Allaveganna þá er bumbubúinn ennþá í bumbunni, skil ekkert í honum að velja sér ekki þennan fína dag 08.08.08. Hvað er málið með þig drengur??:)Hann ætlar víst að koma bara þegar honum hentar þessi elska, en vá gerir hann sér ekki grein fyrir eftirvæntingunni eða?? Jæja það þýðir ekki að argast yfir því. Kannski er hann bara að pína mig, hver veit! Þetta eru kannski bara svona skilaboð til mín að slaka aðeins á pirring! Honum lýst kannski ekkert á mömmu valið.  Hann er kannski smeikur við mig greyið, ég skellti jú bílhurðinni á bumbu-greyið í gær! Já haldiði ekki að mín hafi farið í bónus og verið að basla við að koma pokunum inn í bíl í rigningunni með tilheyrandi pirring (en ekki hvað??) svo loksins þegar því var lokið þrumaði mín hurðinni aftur en gleymdi að færa sig frá og *búmmmmm*beint á magann! Þá tók við ennþá meiri pirringur og sársauki...þetta var nefnilega mjög vont skal ég segja ykkur!Nóg um það, á allaveganna eftir að passa mig á bílhurð það sem eftir er af minni meðgöngu.

Hér á bæ eru umræðurnar ansi mikið farnar að snúast um barnið og fæðingu þess. Við sátum hérna foreldrarnir ásamt verðandi stóra bróðir í kvöld að ræða málin. Pabbinn vildi nú meina að bróðirinn hafi verið hið besta unga barn, bara mjög þægilegur. Vonum þá að litli verði bara einsBrosandiAftur á móti vildi bróðirinn meina að hann hafi nú verið erfiður (hann var að ruglast á núna í dag og þá hehe nei djók) Hann stóð einnig mjög fastur á því að fæðingin hans hafi verið tekin upp á video! Maggi vildi nú ekki meina það en guttin ætlaði að fara þræta við pabba sinn um að hún hafi sko víst verið tekin upp þegar hann áttaði sig á því að SKÍRNINGIN takið eftir skírningin hafi verið tekin upp! Hann segist einnig muna eftir skírningunni „júhhh ég man víst eftir henni, hún var tekin uppá video“ Fattar ekki alveg munin á að hafa kannski horft á þetta einhvern tímann og að muna bara eftir sér þarna! Einnig þykist hann muna eftir því þegar mamma hans var að sjóða snuðin fyrir hann! Ég spurði hann nú bara pent af því hvort hann hafi notað snuð til sjö ára! Fékk ekki fallegt augnaráð þáHlæjandi Já langaði bara að deila aðeins með ykkur part af kvöldstundinni hér í Lautinni...

Ég held ég verði að blogga aðeins oftar! Efast um að einhver í nútíma samfélagi hafi barasta tíma tilsað lesa alla færsluna! Er samt ekki búin sko....

Hvað er málið með mig og þetta blessaða „Lubba-partý“ Þetta er þriðja árið sem ég kemst ekki...finnst það eiginlega hund-skít fúllt! Missti af því í fyrra og hitti-fyrra! Ætlaði sko ekki að missa af því í ár en júhúpúhú....Hvað ætli verði á næsta ári! Skal allaveganna lofa ykkur því að ég sit ekki heima með bumbu út í loftið..ekki allaveganna „fulla af fólki“BrosandiEn það verður spennandi að sjá hvað ég verð að gera þá.

Jæja nú er ég að spá í að koma mér í bólið!! Nenni ekki að sitja ein hérna í stofunni....feeeeerlega einmanna, allir farnir að sofa á þessu heimiliFýldurÁ meðan ég man eru komnar inn bumbumyndir...vonandi þær síðustuGlottandi

Eitt að lokum...hvenar haldiði að prinsinn mæti á svæðið?? Raggi Gunn og Helga frænka segja Lau 09.08.08. Ásta María og Maggi (pabbin sko) segja 10.08.08. Jóna frænka segir 24.08.08. Bring‘it‘on‘people!! Langar að sjá hver hefur rétt fyrir sérHlæjandi

Jæja holan kallar *Geisp*

Birgitta Rán
19 athugasemdir

Jæja 37 vikur rúmar!!

24. júlí 2008 klukkan 23:25
Hér bloggum við bara á sjö vikna fresti eða svo...Nei ætli ég verði nú ekki að setja inn fréttir þegar prinsinn mætir á svæðiðBrosandi
Ein tilkynning þið þarna bumbumynda-þyrsta fólk...það eru komnar inn nýjar myndir!! Ég ætla líka að reyna að taka eina mynd á viku núna endasprettinum. Veit bara ekki hvort ég hafi geðheilsu í það þar sem að hann Maggi minn fer hrikalega í mig þegar hann er að taka þessar myndir!! Hann gerir allt til þess að fá mig til að brosa og ég er kannski ekkert í stuði til þess og hann þarf bara að hafa fíflalæti og allan pakkan...Úfff erum við að tala um hormón EÐA??? Já ætli það ekki, ég er allaveganna að springa þessa dagana. Hundleiðinleg og súr bara með ljótu og allan pakkan!
Hins vegar nenni ég ekki að ræða það, veit hann er bara að reyna að gera gott þessi elska...ég þarf bara alltaf smá tíma til þess að átta mig á því.
Ég er búin að fara bæði í mæðraskoðun og sónar í þessari viku. Allt kom vel út í öllu þessu. Blóðþrýstingurinn er reyndar frekar hár hjá mér en ég á bara að slaka á.....er ekki alveg að sjá það gerast! Hjartsláttur barnsins góður og minn bara búin að skorða sig. Jájá menn bara búnir að setja sig í stellingar fyrir komuna í þennan heim. Í sónarnum var hann mældur (tek þessu með fyrirvara) en þá var mér tilkynnt að gæinn okkar væri orðin 12 merkur! Já farðu endilega að koma félagi....

Veit ekki hvað ég get bætt við þessa predikun mína, það er bara allt svo gott að frétta og jámmmm...
Held ég láti þetta gott heita í bili, er komin með svefngalsa held ég!!
Allaveganna þið getið alveg treyst á það að það líða ekki sjö vikur á milli núna þar sem það er í ALLRA mesta lagi fjórar vikur eftir, hehe
Glottandi

Jæja við "gutt-ormur" byðjum að heilsa og við heimtum sko kvitt fyrir okkur. Við viljum líka vita hver les fréttirnar!
Jæja góða nótt góðir hálsar
Koss
Birgitta Rán
11 athugasemdir

30 vikur...

05. júní 2008 klukkan 22:11
Já það er óhætt að segja að þessi meðganga fjúki áfram! Við verðum komin með litla mannin í fangið áður en við vitum af og við getum ekki beðiðHlæjandiVið vonum bara að það séu ca 9 vikur eftir! Þá verð ég alveg ofboðslega ánægð...ekkert ganga fram yfir bull!

En í annað! Ég skil nú ekki þetta ísbjarnarmál. Ég ætla að taka það fram að mér finnst ofboðslega sorglegt að hann hafi verið drepinn. Mér finnst líka alveg ótrúlegt að þessi blessaði ráðherra hafi sett þessa ákvörðun í hendur LÖGREGLU. Hún er nú ekkert skarpasti hnífurinn í skúffuni! En hins vegar finnst mér ekkert skrítið að dýrið hafi verið skotið, ég meina hvað átti að gera??? Það var jú einu sinni komin heill her af fólki að skoða hann! Er það lið alveg búið í hausnum. Við erum að tala um villidýr á töltinu þarna og hann hefði nú bara getað étið þetta lið alveg í einum munnbita ef honum hefði sýnst svo! Ég segi fyrir mig að ef að ég hefði heyrt af ísbirni á vappinu hérna uppi við Þorbjörn (fjallinu fyrir ofan Grindavík) þá hefði ég sest upp í minn bíl, ekki til þess að skoða kauða ónei! Heldur til þess að flýja...hefði sko ekkert verið róleg hérna heima vitandi að honum þar! Þannig að þetta er þessu heimska já ég sagði heimska fólki að kenna að svona fór!
Nenni ekki að tala um það meir!

En ég verð að koma einu skondnu að! Það var þannig að í dag þegar ég var búin í vinnni langaði mig alveg óheyrilega í kók í dós...aha! Ég ók hérna upp í Aðal Braut og ég nafngreini sjoppuna út af því að ég þekki eigendur hinna tveggja sjoppana hér og ég vil bara hafa á hreinu að þetta átti sér ekki stað þar! Allaveganna ég segi ég ætla að fá tvær kók í dós og svo spyr ég hvað er þetta mikið?!? Kannski ekki skrítið, maður spyr nú yfirleitt ef manni er ekki sagt það af fyrra bragði! Stelpu skottið sem afgreiddi mig var voða skrítin á svipinn út af því hún var greinilega að átta sig á því að hún væri alveg afspyrnuléleg í hugareikningi! Hún gat ekki sagt mér hvað þetta var mikið en hún gat sagt mér að ein dós kostaði 165 kr!!! Og hvað átti ég þá bara að reikna rest eða? Ég var nú samt ekki lengi að því og sagði já oki þetta er þá 330 kr! og hún bara jáhhhh...alveg að kafna úr heimsku! Þetta pirraði mig pínu en ekkert alvarlega samt! Ég vil bara fá að vita hvað ég á að borga mikið þegar ég er að versla ekki fá að vita hvað hver hlutur kosti! Ég meina hvað ef ég hefði verið að kaupa mér 1-kókdós 3-ísa kannski 4-súkkulaði stykki....hefði hún þá talið upp fyrir mig hvað hvert og eitt kostaði??? Ég er engin HEL.........neytendasamtök og mér er bara skít sama hvað hver hlutur kostar! Ég vil bara fá að vita hvað ég eigi að borga. PUNKTUR!

En nú er þessi blessaða færsla orðin eilítið löng og ég er að spá í að fara sofa í hausinn á mér!!

Við litli yndislegi fallegasti bumbubúinn byðjum hjartanlega að heilsa og segjum Góða nóttKoss
Birgitta Rán
9 athugasemdir

Jú og við erum sko sprellllllifandi!

08. maí 2008 klukkan 21:44

Ég gef mér bara ekki tíma í að setjast fyrir framan tölvuna og skrifa einhvað hér inná! Virðist eiga alveg fullt í fangi með að halda heimili og græja allt og gera sem við kemur því! En þó svo maður sé á haus alla daga þá er þetta yndislegt lífBrosandiÞað er jú lífið ekki satt!

Allaveganna, í dag þurftum við Andri að skjótast í bæinn. Það er ekki frásögufærandi nema....við vorum að keyra út úr fyrsta hringtorginu í Hfj og þá var einhver fáviti sem var "by the way" óeinkennisklædd lögga sem svínaði á mig og svo þegar hann var búin að því fór hann yfir á hina aðgreinina og hann hleypti mér bara ekki! Ég þarf nú ekki að nefna að ég var með stefnuljós á ALLAN tímann!! En já hver kannast ekki við þetta "Ekki benda á mig" Nei þessar löggur eru sko ekkert barnanna bestar í umferðinni! Einnig vorum við að keyra inn á Miklubraut og ég lít til hliðar og þá voru bílarnir stopp á rauðu ljósi þannig að ég gat farið inná, þegar ég var nýkomin inn á þá kom grænt á þá og þeir (bílarnir) keyrðu bara eðlilega rólega af stað! En svo krossbregður mér alveg í kút! Koma þá ekki tvö helvítis mótorhjól á ljóshraða fram úr mér!! Ég hefði átt að rikkja í stírið....við getum þá sagt að það hefði verið tveimur minna um hálvita á mótorhjólum í umferðinni!! Þetta er alveg makalaust. Ég get svo guðsvarið fyrir það að ég var að passa mig og keyrði mjög varlega, enda með eitt barn í bílnum og annað undir belti!! Ég bara ÞOLI ekki svona hálvita.
Úfff nú er ég orðin pirruð afturSvalur

En af bumbubúanum er allt gott að frétta! Maginn gengur alveg til þegar hann byrjar. Alveg meiriháttar fyndið, ég lá bara í kasti hérna þegar ég sá þetta fyrst! Enginn á þessu heimili hefur samt haft þolinmæði í að liggja og glápa á vömbina til þess að verða vitni af þessu, nema jú Harpa sys....enda sat hún við borðstofuborðið og GLÁPTI! Ég var bara orðin hálf sperhræddHlæjandiNei djók! Nú hljóta að fara koma inn bumbumyndir! Ég get bara ekki gert það sjálf, ég treysti ekki Andra til þess og maðurinn minn er aldrey heima til þess að vera mynda frúnna í bak og fyrir! En hins vegar sé ég fram á smá tíma einhverntímann núna um helgina!

En þetta er nóg af þvaðri í bili! Ég ætla að fara fylgjast með úrslitaþættinum á Hæðinni á plúsnum.

Jæja...við Bumbi byðjum að heilsa og já þið fáið bráðum mynd. Ég skil ekkert í mér að vera ekki duglegri við þetta! Mér finnst jú rosa gaman að skoða annara manna bumburBrosandi

En jæja Hæðin er að verða búin....

Birgitta Rán
5 athugasemdir

Frábær helgi að baki!!!

28. apríl 2008 klukkan 22:01
Já hún var vægast sagt alveg mögnuð blessuninHlæjandiVið hjúin ákváðum að skella okkur í "road-trip". Þetta var alveg tilvalið, ekkert barn og Maggi ekki að vinna...það er nú saga til næsta bæjar skal ég segja ykkurÓákveðinn

Við lögðum af stað á laugardagsmorgni austur eftir, ákváðum að skella okkur á hótel rétt við Kirkjubæjarklaustur. Keyrðum um suð-austur landið og skoðuðum helstu staðina, það er að segja jökulsárlón og náttúrulega alla skriðjöklana og margt margt fleyra skemmtilegt. Svo fórum við bara heim á hótel um kvöldið og borðuðum rosa góðan kvöldmat og ég fór nú að sofa! Maggi gat nú hins vegar ekki verið þekktur fyrir annað en að skella sér niður að vatni og reyna að veiða einhvað, sem hann gerði nú ekki en var alveg pott þéttur á því að það hafi verið nartað en það er nú ekki nógGlottandi
Svo lögðum við bara í'ann heim aftur fyrir hádegi á sunnudag og komum þá við á ýmsum flottum stöðum. Þetta var alldeilis ferð og gert sko heldur betur gott úr henni þó við höfum bara haft sólarhring í þetta!
Toppuðum svo helgina með því að koma við í búð og keyptum á grillið og húsbóndinn grillaði dýrindis kvöldverð fyrir okkur. Við mælum eindregið með svona ferð...þetta er svoooo frábært og skemmtilegt að geraBrosandi

Af bumbubúanum er annars allt rosa gott að frétta. Þessi bumba mín stækkar alveg rosalega! Samt alveg ótrúlega fyndið að það sést ekkert aftan á mér...svo þegar ég sný mér við þá bara blasir perustefnið viðSvalurHvernig ætli ég verði á endanum! Allaveganna allir með hressasta móti hér á bæ og skammdegisþunglyndið heldur betur búið að renna af fólki!!
Jæja nú verð ég að hætta! Er orðin of sein í dáldið sem ég get ekki skrifað hér inná. Sorry ef einhverjir forvitnir lesa...þá verðiði bara að hringjaGlottandi
Skelli inn bumbumynd um næstu helgi! Við Bumbi byðjum allaveganna kærlega að heilsa og þökkum fyrir góðu kommentin í síðustu færslu. Okkur vantaði alveg að fá að vita að við værum ekki eins og búrhvalur þar sem við erum hætt að komast í föt!
KisskissKoss
Birgitta Rán
6 athugasemdir

25 vikur á morgun og tíminn flýgur!!!

24. apríl 2008 klukkan 21:32
Já ástæðan fyrir þessu bloggleysi er bara ósköp einföld!
Hafði bara ekkert að segja sko...ekkert nema gott að frétta og allt gengið eins og í sögu hjá okkur í Laut 16Svalur

Nú leynist það ekkert að það sé fjölgun á þessu heimili! Mér finnst ég vera að springa. Kvíði nú bara fyrir endasprettinum...
Ástæðan fyrir engri bumbumynd í margar vikur er að mér finnst ég "hjúmangós" í alla staði grínlaust! Harpa sys tók nokkrar og ég var með æluna upp í kok við að skoða þær og eyddi þeim um leið! En nú er komin ein inn...og svo setti ég líka það sem Dúllinn er búin að fá líka, það er bara sætt skal ég segja ykkur!
Jæja nú ætla ég að skella mér í göngu með Helgu nágranna...ekki veitir af skal ég segja ykkur!!!
Jæja vonandi verð ég málglaðari og bara glaðari í næstu færsluHlæjandi

Birgitta og Bumbi byðja að heilsa!
Birgitta Rán
5 athugasemdir

Talandi um að hafa hlutina á tæru!!!

12. apríl 2008 klukkan 11:36
Já ég gat nú ekki annað en hlegið í gær. Það var þannig að ég var að koma heim úr vinnuni í gær og þá stoppaði Friðfinnur mig (litli frændi). Ég hala niður rúðuna og hann segir "Birgitta...skuldaru mér ekki ennþá 500 kr sem ég lánaði þér um daginn" Það var þannig að þau voru hér í mat, þar að segja Gagga og Finni. Ég var einhvað á síðasta snúning með allt saman og það þurfti að fara og kaupa franskar og ég sendi þau að sækja og ég var bara með kort þannig að Finni bauðst til að borga bara og ég ætlaði svo að borga honum síðar!! En já það gleymdist og ormurinn minnti mig svo skemmtilega á þetta í gær. Bara dúlla þessi snúlla...og með allt á hreinu skal ég segja þér/ykkur! Þetta var samt eiginlega mikið fyndnara í gær sko!!!

En af öðru þá er bara allt gott að frétta! Ég er nú að verða ansi myndarleg (eins og ein sagði við mig í vinnuni í gær) Ég fer í meðgöngujóka 2x í viku og það er ekkert smá notalegt! Ég var meira segja með strengi eftir síðasta tíma (fyrsta tímann). Vissi ekki að það væri hægt! En það er skoooo hægt skal ég segja ykkur!

Í kvöld erum við með matarboð með meiru. Heiða-Bjöggi og börn ætla að koma og borða hjá okkur og gista, það verður gaman og notalegt að hitta þau svona í rólegheitum. Búið að krydda lærið og setja það inn í ofn, það á bara eftir að kveikja og ummmm svo borða!

Ég á að vera að þrífa heimilið núna. Er engan veginn að nenna því. Kem mér bara ekki í þetta...Við vorum vöknuð kl níu í morgun ofur hress og þá ákvað ég að nú skyldi þrífa heimilið!! Maggi ofurhressi ákvað nú samt að fara að dúlla í "hinni konunni í lífinu sínu"...það þarf líka að þrífa hana greyið...
Enda er það ágætt þar sem hans þrifa taktík er ekki alveg eins og ég vil hafa hana og má hann mín vegna vera með hana bara í friði í gröfunni í dag.

Jæja nú gengur þetta ekki lengur! Ég verð að fara gera eikkað!!! Við bumban byðjum að heilsa úr veðurblíðunni í Grindavík sem er by the way dag eftir dag...Svalur 
 
Birgitta Rán
4 athugasemdir